31.1.2011 | 18:59
Græna Reykjavík
Ég vil að allt höfuðborgarsvæðið verði gert að einu sveitarfélagi, Reykjavík. Ég vil sjá nýjar áherslur í skipulagsmálum, sérstaklega er kemur að samgöngumálum.
Reykjavík verði græn borg, grænna bíla og strætisvagna. Þá horfi ég einkum til rafknúinna farartækja, því sá orkugjafi virðist ætla að verða ofaná, nú þegar sér fyrir endann á tímabili bensín-og dísilbíla.
Mér finnst eðlilegt og brýnt að borgaryfirvöld, rétt einsog samgönguyfirvöld á landsvísu, fari að koma sér að verki við að rafmagnsvæða umferðina á götunum. Við höfum ódýrt rafmagn á Íslandi, frá endurnýjanlegum orkugjöfum, því er alveg rakið að við dembum okkur í rafvæðingu bílaflotans, ekki seinna en strax !
Ennfremur vil ég sjá áframhaldandi uppbyggingu göngu- og hjólreiðastíga á Höfuðborgarsvæðinu. Reykjavík hefur staðið sig nokkuð vel á þessu sviði, en vegna hreppapólitíkur innan Hb-svæðisins eru lélegar tengingar milli sveitarfélaganna. Sem dæmi vantar hjólastíg meðfram Hafnarfjarðarveginum, auðvitað ætti að vera fljótlegt og auðvelt að hjóla milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, svo ég nefni eitt dæmi. Heldur er enginn hjólastígur meðfram hinni nýju Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Mjóddarinnar í Reykjavík.
Gamla pólitík Sjálfstæðisflokksins í þessum málum, þar sem samgönguskipulag miðaði að því að allir þyrftu að eiga bíl til að komast leiðar sinnar, er pólitík sem við ættum að kasta í ruslið. Sú pólitík var pöntuð af bílabransanum og olíufélögunum.
Íbúarnir, fólkið hefur þurft að þola meiri vegalengdir, hærri ferðakostnað, óhemju mikið af dýrum og ljótum umferðarmannvirkjum auk loft- og hávaðamengunar vegna þessa. Í öðrum orðum; ómanneksjulegra og óvistlegra umhverfis en nauðsynlegt er, lakari lífsgæða einfaldlega.
Ný pólitík á þessu sviði ætti að miða að Reykjavík sem grænni, hreinni, fallegri og vistlegri borg sem skemmtilegt og yndislegt er að eiga heima í.
Takk fyrir mig.
Um bloggið
Sigfús Austfjörð
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.